Advertisement
Vörulisti
Jólaservíettur Viskastykki Svunta Löber / borðrenningur Laufabrauðsjárn
Senda á vin
Mynstrað munngæti

Mynstrað munngæti er verkefni sem að snýr að mynsturgerð í íslenskri matarhefð. Vissir þú að íslenskt laufabrauð er einstakt í heiminum?

Laufabrauð þróaðist á íslenskum heimilum þegar takmarkað mjöl var til og þjóðin nýtti hugvit og handverk til að skapa list úr litlu. Þannig urður örþunnar laufabrauðskökur brauð sjálfrar jólahátíðarinnar og útskurður alþýðulistamanna bætti upp hve matarlítil kakan var í raun.

Laufabrauðsdagurinn er tilhlökkunarefni. Hátíðleg samverustund lituð sköpun og tilhlökkun, allir taka þátt og önn hversdagsin víkur fyrir alþýðulist. Laufabrauð er einstakur hluti af arfleifð okkar íslendinga. Örþunn útskorin  laufabrauðskaka þróuð í áranna rás af hagsýni, hagleik og menningu er gimsteinn í matarmenningu íslensku þjóðarinnar.

Njóttu mynstraðs munngætis með viðhöfn og virðingu.


Höfum til sölu kort með laufabrauðsmyndum ásamt skýringartexta á fjórum tungumálum. Kortin eru þríbrotin 18x18 cm. kremuð að lit og þeim fylgja umslög.

 kortinn.jpg  kortut.jpg

Smellið á myndirnar til að sjá stærri

laufabr_mynd.jpg 02.jpg
 05.jpg
  Laufabrauðsdagurinn    
 03.jpg 04.jpg
06.jpg
  Hvað ungur nemur, gamall temur.   Afraksturinn  

 Laufabrauð Baðstofunnar


5 dl mjólk
1 egg
2-3 msk sykur
½ tsk salt
25-50 g smjör
1 tsk lyftiduft (lítil)
¼ tsk hjartarsalt
950 g hveiti

Mjólk, egg, sykur, salt og smjör sett í pott og hitað að suðu (má ekki sjóða) hrært stöðugt í á meðan með þeytara. Sett í hærivélarskál og hveitið sett saman við ásamt lyftidufti og hjartarsalti. Hnoðað í hrærivélinni. Búin til lengja úr deginu og vafið inn í plast og látið kólna. Kökurnar steiktar í olíu eða tólg og pressaðar með sléttu loki eða bretti meðan þær eru sjóðheitar. Þessa uppskrift er vandasamt að fletja út, en gott að brjóta saman þegar skera á í kökuna með hníf, það er að segja kakan límist ekki saman.

Laufabrauð Húsfreyjunnar

750 gr. hveiti
250 gr. hrísmjöl
2 msk. sykur
2 tsk. Salt
2 tsk lyftiduft
50 gr. smjör / smjörlíki
7 dl. heit mjólk

Mjólkin er hituð með smjörinu að suðu (má ekki sjóða), þurrefnunum blandað saman og því næst mjólkinni, hnoðað. Kökurnar steiktar í olíu eða tólg og pressaðar með sléttu loki eða bretti meðan þær eru sjóðheitar. Þessa uppskrift er auðvelt að fletja út en kökurnar vilja límast saman þegar þær eru brotnar til að skera í þær með hníf.